Heyrst hefur að Tom Cruise og Katie Holmes séu að undirbúa Suri Cruise fyrir feril í skemmtanabransanum.
"Þau eru með hana í söng, dans og leiklistartímum til að undirbúa hana," sagði heimildarmaður við Showbiz spy.
En spurning er hvort þetta sé góð hugmynd þar sem Suri, sem er aðeins 4 ára, er nú þegar þekkt fyrir hinar miklu skapsveiflur sínar.
Jafnvel þurfti pabbi hennar, Tom, að viðurkenna það í viðtali við Oprah Winfrey að hún klæðist því sem henni langar til að klæðast.
Trú Tom og Katie í Vísindakirkjunni, er sögð hafa hjálpað til við að framkalla þessa dekurhegðun hjá Suri.
Samkvæmt trúnni á hverju barni að vera leyft að gera það sem það vill og að segja aldrei nei við það.
Now segir frá því að Tom hafi fengið hjálp frá barnasérfræðingi úr Vísindakirkjunni til að kenna Suri hvernig hún eigi að haga sér.
Heimildarmaður sagði: "Hann hefur fengið kurteisisþjálfara. Hann segir Suri ekki hvað hún eigi að gera, en kennir henni að vera kurteisari."
"Um framför er að ræða en í fyrstu hataði Suri þessa kennslutíma, en núna er hún farin að hlusta meira á þá."
En það var mikið sett út á foreldrana þegar sást til Suri klæðast hælaskóm.
Heimildarmaður sagði: "Fólk úr Vísindakirkjunni er alið upp þannig að börn eru einstaklingar, þannig að Suri má klæðast hverju sem er."
"Ef að Suri mundi vilja fara út að degi til í náttfötum, þá væri það hennar ákvörðun samkvæmt Vísindakirkjunni og þá mundu Tom og Katie leyfa henni það."
"Þegar hún kemst í uppnám þá tala Tom og Katie við hana eins og hún sé fullorðin. Þau spyrja hana beint út hvað sé að, jafnvel þótt börn viti oft ekkert afhverju þau eru í uppnámi."
"Ef hún er þreytt, verður hún fúl og Tom og Katie spyrja þá hvort hún vilji fara í háttinn. Og auðvitað segir hún nei því það er eitthvað sem krakkar gera. Hún vill halda sér vakandi jafnvel þótt hún sé að deyja úr þreytu."




