Jordan vonast til þess að fá að sitja fyrir í Playboy sem eldri borgari.
Glamúrmódelið byrjaði að sitja fyrir þegar hún var 17 ára og ætlar hún að reyna að vera sem lengst að.
"Ég sé sjálfa mig sitja fyrir þegar ég verð gömul, og ég meina virkilega gömul", sagði hún.
"Ég segi það oft við sjálfa mig að þegar ég verð sjötug langar mig til að sitja fyrir í Playboy".
Jordan er viss um að hún muni verða í flottu formi í ellinni.
"Ég mun hafa flottustu brjóstin, og jafnvel þá, þau munu vera flottari en hjá nokkru öðru Playboy-módeli. Rassinn verður ekki slæmur heldur", sagði hún í Sunday People.
"Það verða einhverjar hrukkur en ég mun lifa það af".
gossip@gossip.is




