CherylC.jpg

Fjölskylda og vinir Cheryl Cole, sem hafa miklar áhyggjur af heilsufari Cheryl, hljóta að anda léttar núna eftir að hún hefur komið í veg fyrir að fyrrverandi eiginmaður hennar, Ashley Cole, heimsæki hana.

Ashley er sagður hafa beðið um að fá að hitta Cheryl eftir að hann snéri heim frá Bandaríkjunum - En hún sagði nei.

"Það er alveg á hreinu að Cheryl vill ekki hitta Ashley. Miðað við allt sem hún hefur gengið í gegnum er það ekki góð hugmynd", sagði heimildarmaður.

Derek Hough er sagður búa hjá Cheryl þessa dagana og ágreiningur á milli hans og Ashley muni ekki hjálpa Cheryl að jafna sig á malaríunni.

"Derek þolir ekki hvað Ashley gerði Cheryl", sagði heimildarmaður við News Of The World. "Hann sér þjáninguna sem Ashley skildi eftir í henni".

gossip@gossip.is

Deila á Facebook