KimK.jpg

Kim Kardashian vill ekki að einhver líti út eins og hún.

Raunveruleikastjarnan fór á Twitter um helgina og talaði við einn af aðdáendum sínum sem er að spá í að fara í lýtaaðgerð - Og það er engin smá lýtaaðgerð. Frá toppi til táar ætlar aðdáandinn að líta alveg eins út og Kim.

"Nei, ekki gera það", skrifaði Kim á Twitter. "Eiginmaðurinn þinn ætti að elska þig eins og þú ert. Gerðu það fyrir mig að reyna ekki að vera einhver önnur en þú ert. Ég er sannfærð um það að þú ert falleg að innan sem að utan. Ekki breyta þér fyrir neinn nema sjálfa þig. Vertu ánægð með það sem þú hefur. Einhver mun meta þig eins og þú ert".

gossip@gossip.is

Deila á Facebook