Kate Winslet er sögð vera farin að hitta karlfyrirsætu.
Leikkonan, sem skildi við eiginmanninn sinn, Sam Mendes, í mars síðastliðnum, er sögð vera að hitta fyrirsætuna Louis Dowler eftir að hafa kynnst honum fyrir nokkrum mánuðum í gegnum sameiginlega vini.
Heimildarmaður sagði við News of the World: "Louis hefur verið mikið með Kate upp á síðkastið og þau voru saman í New York þegar hann var við tökur á auglýsingu. Þau hafa farið á mörg stefnumót og þeim kemur mjög vel saman. Þau hafa viljað halda þessu sambandi leyndu þannig að þau hafa ekki gert mikið í því enn sem komið er."
Heimildarmaðurinn sagði einnig: "Þau eru að reyna að skipuleggja tímaplönin sín til að þau geti eytt eins miklum tíma saman og mögulegt er."




