Ótrúlegt en satt - Amy Winehouse er byrjuð að spila golf.
Söngkonan byrjaði að spila hina vinsælu íþrótt til að halda sig frá djamminu og hefur golfið veitt Amy svo mikla ánægju að hún ætlar að mæta í tíma hjá golfkennara.
"Hún spilaði níu holur og elskaði það. Hún er með góða sveiflu", sagði heimildarmaður við The Sun. "Amy ætlar að læra almennilega að spila golf".
Amy hefur verið að leika sér að spila golf þegar hún er ekki að taka upp plötuna sem hún er að vinna að þessa dagana.
Svo virðist sem að hinni nýi kærasti Amy, Reg Traviss, hafi góð áhrif á hana.
gossip@gossip.is




