angelina_jolie2.jpg

Angelina Jolie er komin á Twitter.

Þú getur hinsvegar ekki átt von á því að þar verði hún blaðrandi allan daginn. Angelina hefur lokað fyrir aðgang að síðunni. Hún á enga fylgjendur og fylgir ekki neinum sjálf.

"Angelina fékk sitt fólk til að fá þessa síðu svo enginn gæti verið með þetta notendanafn", sagði heimildarmaður við UsMagazine. "Það var reyndar einhver sem var að nota @AngelinaJolie, en Angelina fór fram á það að þeirri síðu yrði lokað og tók hún síðan yfir hana".

Heimildarmaðurinn bætti því við að leikkonan gæti orðið virkur notandi á Twitter seinna á þessu ári.

Og hvað myndi Angelina skrifa um?

"Ef hún notar síðuna mun hún skrifa um eitthvað tengdu góðgerðarmálum eða að deila vefslóðum", sagði heimildarmaðurinn.

gossip@gossip.is

Deila á Facebook