halle-berry.jpg

Halle Berry og fyrrverandi kærasti hennar og barnsfaðir eru sögð ætla að búa saman í Cape Town næstu þrjá mánuðina.

Leikkonan verður í tökum á nýrri mynd, Dark Tide, í Suður Afríku og Gabriel Aubry getur ekki hugsað sér að sjá ekki dóttur þeirra Nahla, allan þennan tíma.

Þannig að Halle bað Gabriel um að koma með sér og vera einhverskonar barnfóstra á meðan.

"Halle er búin að taka risastórt hús á leigu", sagði heimildarmaður við RadarOnline. "Hún og Gabriel ætla að reyna að búa saman undir sama þaki og reyna að halda friðinn vegna Nahla.

Halle sást fyrr í vikunni í Cape Town með Gabriel.

Þau hættu saman í apríl á þessu ári eftir 4 ára samband.

gossip@gossip.is

Deila á Facebook